Búðin Svartbysvart er samstarf milli listamannsins/hönnuðarins Marko Svart og sameigandans Momo Hayashi. Þau hafa það að markmiði að bjóða upp á einstaka hönnun sem hvergi er hægt að finna annars staðar.Allar vörur þeirra eru handunnar af eigendunum sjálfum, og er sýn þeirra á tísku sérstaklega nútímaleg og framsækin.Fötin eru sígild og algjörlega kynlaus, gerð með gæði og siðferði í huga. Búðin býður einnig upp á margs konar týpur af skartgripum, allt frá einkennandi postulín hvalasporðunum frá Svart til hálsmena og eyrnalokka úr fiskibeinum. Þessar vörur sýna fegurð náttúrulegra efna.