Rammagerðin/Iceland Gift Store var stofnuð 1940 og er ein elsta gjafavöruverslun Íslands. Í upphafi var aðalhlutverk fyrirtækisins að búa til ramma og ramma inn eins og nafnið gefur til kynna en þróaðist yfir í gjafavörur úr ull og síðan í að selja fjölbreytilegar vörur eftir handverksfólk og hönnuði hér á landi úr íslensku hráefni.