Kiosk er hönnunarbúð stofnuð af 5 íslenskum hönnuðum. Það er ekki einungis flott föt og fylgihlutir sem gera búðina að frábærum áfangastað, heldur skiptast hönnuðirnir á að vinna á bakvið búðarborðið svo þú munt alltaf pottþétt hitta eina þeirra þegar þú kemur í heimsókn. Merkin sem eru í boði eins og er, eru: Anita Hirlekar, Bahns, EYGLO, Hlín Reykdal og Magnea.