Védís Pálsdóttir lærði vöruhönnun hér á landi. Hún fór svo og gerðist „intern“ hjá danska hönnunarfyrirtækinu Stúdío Kristina Dam og seinna fór hún að vinna hjá HAF stúdíó í vöruþróun og innanhúshönnun. Védís tók þátt í HönnunarMars 2020 með verki sínu „Hvernær verður vara að vöru“ sem vakti verðskuldaða athygli.