Rigningin er aukaatriði þegar þú klæðist regnkápu frá Reykjavik Raincoats.
Ef þér líkar ekki veðrið, bíddu í eina mínútu“ er vinsæll frasi sem lýstir vel íslenska veðurfarinu, í regnkápu frá Reykjavik Raincoats ertu vel klædd/ur fyrir hvaða veður sem er.
Reykjavik Raincoats var stofnað árið 2014, en kveikjan var votviðrasamt sumar í höfuðborginni og árangurslaus leit stofnenda að tímalausum regnkápum fyrir bæði kynin. Klassísk vörulína fyrirtækisins hefur fengið góðar viðtökur en regnflíkurnar eru hannaðar með það fyrir augum að endast og nýtast í hvaða veðri sem er.
Kápurnar fást í verslun Reykjavík Raincoats að Laugavegi 62 í hjarta borgarinnar þar sem rigningardagar skapa rétta andrúmsloftið fyrir klassíska hönnun. Þar getur þú mátað kápurnar og spjallað við hönnuði. Þegar rétta regnkápan er fundin þá muntu óska þess að rigni alla daga.