Farmers Market er íslenskt hönnunarfyrirtæki, stofnað 2005 af hjónunum
Bergþóru Guðnadóttur hönnuði og Jóel Pálssyni tónlistarmanni.
Innblástur
er sóttur í ræturnar; íslenska arfleið, náttúru og menningu svo úr
verður vörulína þar sem klassísk norræn hönnunarstef kallast á við
mínímalískan módernisma þar sem sveitarómantíkin er aldrei langt undan.
Sjálfbærni, notagildi og virðing fyrir umhverfinu eru leiðarstef fyrirtækisins en fatnaðurinn hentar við fjölbreytt tilefni, útivist til jafns við borgarlíf.
Við staðsetjum okkur á krossgötum, skurðpunkti þar sem fortíð mætir nútíð, hið þjóðlega mætir hinu alþjóðlega og sveitin mætir borginni. Okkur þykir spennandi að bræða saman þessa heima.