Eygló Margrét Lárusdóttir hefur þótt í fremstu röð íslenskra fatahönnuða seinustu ár og skapandi störf hennar þykja lýsa frumlegum úrlausnum í bland við hefð og vandrataðan töffaraskap. Eygló blandar saman gömlum stíl og nýjum í flíkum sem einkennast af sterkri sýn hönnuðar sem ratar sínar eigin slóðir.
Eygló hlaut verðlaunin „Fashion Design of the year 2016“ fyrir línuna sína „Murder She Wrote“ en meðal fyrrum hugðarefna hennar má nefna Kristna trú, yfirborð Mars, röntgen tækni og íslenska náttúru.