Hjarta Reykjavíkur er lítið fjölskyldufyrirtæki stofnað árið 2019 af Jóhanni Ludwig Torfasyni og Ragnhildi Jóhanns. Uppistaðan í vörum þess eru teikningar Jóhanns af húsum í miðborg Reykjavíkur, settar saman í mismunandi borgarlandslag og prentaðar með ýmsum hætti á pappír, málm, púsluspil, textíl eða keramik. Hjarta Reykjavíkur rekur vefverslun samhliða rekstri verslunar á Laugavegi 12b. Í versluninni er einnig vinnustofa og verkstæði þar sem vörur eru hannaðar og framleiddar. Verkstæðið er vel tækjum búið, m.a. hágæða stórsíðuprentara og tæki til að brenna myndefni á keramik og annað með aðferð sem kallast Dye Sublimation. Einnig er inn af rýminu lítil sýningaraðstaða þar sem haldnar eru myndlistarsýningar.